|

Human Touch Technology®. Eins og nafnið vísar til hefur Interactive health náð gríðarlegum árangri í þróun nuddstóla sem nálgast mannlegt handbragð sjúkraþjálfara og nuddara, hvort sem er til slökunar eða lækninga. Með einfaldri snertingu á hnappa stjórnborðsins hefst meðferð sem endurnýjar líkama og sál.
Þessi margþætta einkaleyfisframleiðsla Human Touch Technology® líkir eftir lækningartækni sem notuð er við bak- og hryggjameðferðir sérfræðinga. Stólarnir eru hannaðir til að fylgja eftir náttúrulegri legu hryggjarins og mýkja stífa og stirða vöðva líkamans. Human Touch Technology® nuddstólarnir líkja eftir fjórum ólíkum nuddaðferðum sem geta farið vítt og breytt um bakið.
Þinn eigin nuddari alltaf til staðar allan sólarhringinn.
Ameriski Human Touch Technology® nuddstóllinn hlýðir óskum þínum með nuddi frá hálsi, niður í kálfa og iljar. Þú aðlagar hverja hreyfingu að þínum eigin þörfum eða stillir á fyrirfram uppsettar nuddmeðferðir.
Hágæða framleiðsla og glæsileg hönnun.

|