ORIENT garðkúlurnar eru í tveimur hlutum, rúmlega 1/3 hluti kúlunnar opnast þegar hurðinni er rennt aftur fyrir hinn helming kúlunnar, báðir hlutar eru á braut og er því hægt að snúa henni í heilan hring. Hægt er að láta opið snúa á móti morgunsól í upphafi dags en snúa svo síðdegis á móti kvöldsólinni. Einnig er hægt að snúa kúlunni þannig að hafa megi af henni skjól.
Enginn vafi er á því að heitir pottar eru skemmtilegastir utan dyra hvort sem er á góðum sumardegi eða á fallegu stjörnubjörtu vetrarkvöldi þegar norðurljósin iða af lífi. En í mörgum tilfellum er hráslagalegt ef ekki er hægt að loka að sér og fá skjól fyrir regni og vindi. Kostir garðkúlunnar og garðskálanna frá IPC eru því ótvíræðir í okkar veðurfari hér á Íslandi.
IPC hefur verið í fararbroddi síðust árin í framleiðslu sundlaugaskála, garðkúla og skála yfir verandir. Þeir hafa verið fyrstir með nýjungar eins og garðkúlurnar á braut, sundlaugaskála með kúlulaga enda, lágar flatar gólfbrautir og álprófila með viðaráferð svo eitthvað sé nefnt. Framleiðsla IPC er boðin í 30 löndum Evrópu ásamt Asíu og Ameríku. Nútímaleg hönnun og tölvustýrð framleiðsla gerir IPC að leiðandi framleiðanda á sínu sviði. Garðkúlurnar og skálarnir eru framleidd í hvaða stærðum sem óskað er.
Álprófilarnir eru framleiddir í eftirfarandi litum: hvítum, grænum, beige, állit og í viðarlíki. Einnig er hægt að sérpanta prófilana í hvaða lit sem er samkvæmt RAL litakerfinu.
VERANDA garðskálarnir eru á braut við þakkant hússins og einnig á veröndinni. Allt að sex færanlegar einingar mynda bogalaga þak og veggi skálans sem renna hver undir aðra. Á þann máta er hægt að "fjarlægja" skálann ofan af veröndinni þegar veður er gott en draga hann svo yfir svæðið þegar þörf er á skjóli. Hægt er að renna einingunum í hvora áttina sem er, það eykur nýtingu svæðisins. Einnig má nefna að þegar á að grilla er hægt að opna skálann yfir grillinu svo reykurinn komist út en vera samt í skjóli.
Garðskálarnir eru framleiddir úr álprófilum. Allar skrúfur, hjól og aðrir íhlutir eru úr ryðfríum efnum sem eykur endingu húsanna. Hönnun prófilanna felur allar festingar og hjól, útlit skálans er því afar stílhreint. Gólfbrautirnar eru 10 mm þykkar, flatar að ofan sem þægilegt er að ganga á. Rúður húsanna eru Polycarbonate plötur ýmist tvöfaldar 10 mm eða einfaldar 4 mm með dropavörn.
Skálunum er ætlað að standast mikið veðurálag svo sem sterkan vind, bleytu, sólarljós, regn, snjó og hitastig frá -50°C til +115°C.
Hlutverk garðsins er alltaf að aukast sem leiksvæði og samverustaður með vinum og í faðmi fjölskyldunnar. Falleg verönd með garðhúsgögnum, heitum potti o.fl. er orðin hluti af lífstíl okkar. Með opnanlegum garðskála nýtist þessi sælureitur allt árið um kring óháð veðri. Ennfremur safnast ekki fyrir snjór og önnur óhreinindi á svæðinu og þeir hlutir sem tilheyra veröndinni halda útliti sínu til langs tíma án þess að þeim sé komið fyrir í geymslu yfir veturinn.
Olympic
Olympic var upphaflega framleitt sem lokun yfir sundlaug þar sem hægt er að renna þakinu ofan af sundlauginni en gefur jafnframt kost á að opna kúlulaga enda hússins.
Þessi útfærsla gerir líka mögulegt að tengja hana við húsvegg þannig að hægt sé að ganga innan úr húsi í kúlulaga garðskálann sem opnast yfir veröndinni.
Fallegt útlit og snjöll hönnun einkennir þessa útfærslu.
Þetta garðhús er framleitt í breytilegum stærðum eða samkvæmt uppgefnum málum.